Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sandra Ýr Dungal
  • Staður: Koi Tropika Condominum C-19-07 Jalan Puchong Batu 13 1/2 47100 Puchong Selangor Malaysia
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur

Apa ni...maafkan la!!

05. maí 2009 klukkan 08:23
Jæja best að skella einni færslu hingað inn...

Annars er bara lítið að frétta....bara brjálað að gera í skólanum...miðannarprófin búin og mér gekk bara ágætlega...núna er bara brjáluð lokaverkefni og svo lokapróf eftir 4 vikur :)

Til hamingju Birna og Sævar með bumbustrákinn :) love it!!

Til hamingju með afmælið allir sem áttu ammæli í apríl...þar á meðal mamma besta :)

Annars verð ég eila bara að viðurkenna að ég hef bara ekkert að blogga um...en hinsvegar var ég að setja inn fullt af myndum á feisið...þannig endilega skoðið þær bara..mynd segir meira en þúsund orð

Myndir hér og hér

Svona smá til gamans.. hér . þetta er of fyndið

Saya Bumi Putra Gila...maaf

23. mars 2009 klukkan 13:42

Við förum ekki til penang, heldur skellti ég mér með fjórum öðrum stelpum til Port Dickson. Sem er lítill strandabær 2 klst frá kuala lumpur. Þar skemmtuðum við okkur konungslega. Við fundum kósí stað sem að engin var á og tjölduðum þar. Við hlóum, drukkum, dönsuðum, syntum í sjónum og sváfum á ströndinni. Ekkert smá skemmtilegt!!!

International Womens Day var frestaður um eina viku vegna stórra góðgerðatónleika fyrir Gaza sem skólinn hélt. En var núna seinasta miðvikudag...ég var mjjööög stressuð en ég held að þetta hafi allt gengið ágætlega..fyrir utan kannski illa borin fram malasík orð :S En í tilefni að við skipulögðum þennan event fórum við bekkurinn út á föstudaginn, það var rosa gaman.

Í gær förum við á Sunburst Music Festival, sem var FRÁBÆRT!!! Sá fullt af skemmtilegum, furðulegum og æðislegum hljómsveitum. Sátum í sólinni, drukkum tuborg og hlustuðum á tónlist! Gerist varla betra held ég...DSC08234.jpg image by sandrayrd
Stóru hljómsveitirnar sem voru að spila þetta árið voru N.E.R.D...ég og azoo vorum fremst...5 metrum frá Pharell Williams!!!!! Og svo var Korn líka að spila...þeir voru líka alveg ágætir. Hún Erykah Badu átti líka að vera spila en hætti við á seinustu stundu. En þrátt fyrir það var þetta frábær dagur!!

Er Ísland að taka þátt í Earth Hour...þar sem allir slökkvar ljósin í klukkustund????

En jámm aftur í bækurnar..

Helst í fréttum...

05. mars 2009 klukkan 09:25
Góðan dag...góðan dag...glens og grín það er mitt fag...
apple
Í seinustu viku bættist nýr meðlimur í fjölskylduna okkar...macbook pro 15" !! Og guð minn góður hvað hún er falleg!!!! Ívar semsagt keypti sér nýja tölvu og þar sem að hann er í hönnun er makkinn nauðsynlegur. Við fengum hana á mjjöög góðu verði með allskonar skemmtilegum viðbótum.

jason  Í gær fór ég á geðveika     tónleika með Jason Mraz...hann var ekkert smá hress og með jákvæðan persónleika. Ég skemmti mér konungslega...ekkert skemmtilegra heldur en að fara á góða tónleika!!! Svo fer að styttast í tónleikafestival sem heitir Sunburst...þar sem N.E.R.D , Erykah badu , Korn og fleiri spila...Get ekki beðið...
Er enn að bíða eftir að fá að vita hvort Rihönnu tónleikarnir verða eða ekki.


Við erum að spá í að skella okkur í helgarferð til Penang um helgina með nokkrum vinum. Alltaf gaman að fara í smá road trip..sérstaklega með litlum fyrirvara...

Svo í næstu viku er bekkurinn minn að hjálpa að skipuleggja þriggja daga event fyrir International Womens Day þar sem að ég verð kynnir. Ég er frekar stressuð...þarf að tala fyrir framan ffuulllt af fólki og á ensku!! En þetta verður skemmtileg reynsla held ég...


Annars er bara brjálæð mikið að gera í skólanum...verkefni og kynningar á fullu. Sem er soldið skrýtið eftir þrjá mánuði að gera ekki neitt. En það er gott að hafa e-ð að gera.



Blablabla

23. febrúar 2009 klukkan 11:39
Jæja....nú er 3ja mánaðafríið okkar lokið, skólinn hófst á ný í dag.

Það var mjög gaman að hitta alla aftur og svona en þetta verður erfið önn...er með fulla stundatöflu af erfiðum áföngum.

Stöndum núna í að endurnýja allt, sem er bara vesen...endurnýja leigusamninginn, tryggingu og landvistarleyfi og svo framvegis...

Annars er lítið að frétta héðan síðustu vikur eru bara búinar að fara í að hafa það rólegt áður en að skólinn byrjaði...grillveisla, sundlaugin og bjór....

Átti að fara á Rihönnu tónleika um daginn en Chris Brown er bjáni þannig að þeim var frestað...

Eftir eitt ár að hafa horft á 12 tommu sjónvarp fengum við loksins stærra sjónvarp okkur til mikillar ánægu.Einnig erum við komin með gervihnattamyndlykil...þannig að mikill af okkar tíma hefur farið í discovery gláp og auðvitað E! líka hehe...Og núna bíð ég spennt eftir endursýningu Óskarsins..get ekki beðið :)

En já þetta er án efa leiðinlegasta bloggfærsla sem að ég hef nokkurn timan skrifað...enda þvinguð af hópþrýstingi...

Það er margt sem ég sakna á íslandi

02. febrúar 2009 klukkan 10:44

Fjölskyldan
Vinkonurnar
Og auðvitað Mjása sætalíus

En það er bara eitt sem að mig dreymir á næturna....MATUR....

Án gríns þá dreymir mig um að fara á nonna og fá mér djúsí beikonbát með fullt af sósu...fara í hagkaup og versla beikon, skinkur, pítusósu, hamborgarasósu..kokteilsósu, hamborgarahrygg, ora baunir, hangikjöt, roastbeef samloku, kartöflugratín!!!..fara á bæjarins bestu og fengið mér pylsu með steiktum, tómat og remulaði! Fara á american style!! KFC!! Shalimar!!! Ruby Tuesday!!!
En eitt sem mig dreymir mest um..íslenskar pítsur!!! Fá mér eina með alvöru peppó, rjómaoskt og hvítlauksolíu!! Devitos, Pizza Company, Rizzo, Eldsmiðjan. Og núna er dísa alltaf að tala um nýjan pítsustað sem heitir pítsuverksmiðjan sem á að vera betra en allir hinir staðirnir samanlagt!! Og ég er alltaf að hugsa um að kannski mun ég aldrei fá að smakka þessar guðdómslegur pítsur þar sem staðsetningin á staðnum er cursed!

Síðan að ég kom hingað hef ég byrjað að borða hina ýmsu hluti sem að ég hélt að myndu aldrei snerta mínar varir...t.d. sinnep,hrásalat, hamborgara, rauðkál..svo má ekki gleyma öllum hrísgrjónum og núðlum sem hef torgað..en ég veit að ef að mig fer að líka við lauk þá er e-ð virkilega skondið í gangi!

Við íslendingar ættum að vera stolt af okkar mat!!

Jæja held að ég verði að hætta...komin með of mikið vatn í munnin!!!

P.S. og svo má ekki gleyma thule og víking!!!!

Indónesía

25. janúar 2009 klukkan 22:41
Í þarseinustu viku lékum við Ívar í sænskri rokkauglýsingu fyrir lottoið...við vöknuðum eldsnemma og eyddum deginum að bíða og spila en inná milli að hoppa einsog við værum á rokktónleikum..fyrir giggið fengum við smá pening sem að við eyddum í flugfari til Jakarta...

Næsta dag var skellt sér uppá flugvöll og beinustu leið til Indonesíu. Í jakarta komu svo vinir okkar þaðan Bian og tika og sóttu okkur á vellinn. Þau voru mjög dugleg að fara með okkur á ýmsa staði..

Fyrsta kvöldið var farið local stað að borða og svo á djammið. Skemmtistaðirnir í Jakarta er nú ekki litlir...þetta voru huugggee staðir með fáránlegu hljóðkerfi. Á einum staðnum hélt ég að bassinn myndi springa mig í tætlur. Næstu dagar fóru í skoðunarferðir og góðan mat. Tika og kærastinn hennar fóru með okkur á rosa skemmtilega sjávar réttarstað við höfnina þar sem þú valdir þér matinn þinn lifandi...allskonar um að velja...humar, krabba, skelfisk og jafnvel hákarl! Þessi máltíð var án efa ein besta síðan við komum út..eftir það fórum við á flottan bar við ströndina þar sem við sötruðum gott indonesískt vín. Frábært kvöld!
Bian var duglegur að sýna okkur skemmtanalífið í Jakarta...fór með okkur á karíókí..okkur ívar leist ekkert á það fyrst en þegar við komum á staðin þá fengum við bara okkar eigið risastórt herbergi með plasma sjónvarpi, rosa hátalarasystemi, sófum og læti. Þar eyddum við skemmtilegum 3 klst inni að syngja, dansa og drekka..ég verð að taka fram að ég rústaði öllum með mínum söng við Backstreet boys..fékk 98 stig af 100!! Svo fór hann líka með okkur á skemmtistað sem er opin 24/7...þar inni var samt bara skuggalegt fólk..
Tika vinkona átti afmæli þegar við vorum úti þannig að það var skellt sér í fjalla bæ utan Jakarta sem heitir Bandung...það var æðislegt að keyra þanngað..útsýnið var ólýsanlegt!!! Stoppuðum líka í dýragarði sem að þú keyrir í gegn..hann var frábær...sjáum öll dýr sem þú getur ímyndað þér..allt frá geitum, komodo dragon, gíraffa og mörgæsir...Þessi dýragarður fer í top dýragarðslistann minn.
Þegar við komum í bandung var aðeins kíkt í búðir og síðan á veitingarstað þar sem við sáum yfir allan bæinn. Svo var haldið í risa húsið sem var búið að leiga...afmælisveislan hennar átti bara að vera fámennt en þegar við komum þá var fullt af fólki sem komu Tiku á óvart. Partýið var forvitnilegt og skemmtilegt....
Næsta dag okkar var haldið aftur til Jakarta, það kvöld fengum við Ívar næst besta indverskamat sem við höfum smakkað..(Shalimar er enn í fyrsta sæti!)
Næst kom stundin sem okkur kveið mest...að fara heim...Við hefðum alveg verið til í að vera lengur. Jakarta kom okkur skemmtilega á óvart og var frábær í alla staði. Næst verður keyrt meira um og skellt sér jafnvel á Balí...kannski bara með mömmu og pabba...ummm hver veit??

Núna situm við bara útá svölum heima og horfum á flugelda sem að kínverjarnir eru að sprengja til þess að fanga Chinese New Year..lah

Allavegana....myndir segja meira en þúsund orð og ég er búin að skella þeim inná myndasíðuna og feisbúkkið...


Eitt ár...365 dagar!!!

05. janúar 2009 klukkan 20:04
Í Malasíu...váá hvað það er skrýtið að hugsa til þess að í dag er eitt ár síðan við förum frá klakanum í þetta ævintýri okkar.

Byrjuðum að búa heima hjá Helen sem tók okkur inn og sýndi okkur basicið hér...eftir mánaðardvöl í cyberia fluttum við til Koi Tropika í íbúð með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, stofu, eldhúsi, sundlaug og rækt...

Fyrsta ferðalagið okkar gekk ekki alveg nógu vel, tókum lest alla leiðinni til landimæri Singapore en fengum ekki að fara inní landið, þannig að við enduðum aftur í lest heim til KL...samanlagt 24 klst í lest ;S

Annað ferðalagið okkar var æðislegt, við, óskar , vala, kristín og cyppie skelltu
m okkur öll saman á tropikal eyju sem heitir Pulau Tioman og eyddum viku í sælunni þar. Drukkum, spiluðum, fórum í sólbað, göngutúra, drápum ófáa kakkalakka og þar fór ég í fyrsta sinn í köfun og varð ástfangin!

Við förum á frábært hindu festival sem heitir Thaipusam í Batu Caves, þetta er árleg hátið hjá hindúum og hér í Malasíu er það eitt fjölmennast í heiminum. Æðislega gaman að sjá allt fólkið klætt upp í sitt fínasta og sumir með rosalega þungt hof á herðunum að ganga upp 272 tröppur til þess að biðja eftir 40 daga föstu. Algjör upplifun...

Í janúar á seinasta ári uppfyllti ég minn langþráða draum að fara á Backstreet boys tónleika, unglingurinn í mér kom upp og gerðum við posters sem að við héldum uppi á tónleikunum. Þeir voru frábærir...dansarnir, fataskiptin...og bara þeir...nema að það vantaði kevin, dísu, elvu og döbbu..
Fór stuttu seinna á tónleika festival sem kallast Sunburst og sá þar einum af bestu tónleikum sem að ég hef séð..The Roots!!! Einnig á þessu festivali sáum við John Legand og Incubus...ívari til mikillar ánægju.
Formúla 1 var farið á fyrir Ívar, en ég hef alltaf áhuga að sjá e-ð nýtt þannig að ég skellti mér með honum. Setti eyrnatappana í eyrun og hafði ekki hugmynd um hvað var að gerast....sjjúumm sjúúmm og gúmmílykt. Ég vissi ekki einu sinni hver hefði unnið fyrr en 15 eftir að keppnin var búin. En frábært að hafa verið vitni af formúlu 1..

Síðan tók fyrsta önnin okkar á stað og þá kynnumst við fullt af nýju og skemmtilegu fólki. Ég tók þátt í skipulagninu French Art Festival þar sem ein hugmynd mín var valin. Fyrsta önninn okkar var rosalega fljót að líða...

Í maí komu mamma og pabbi til okkar, það var ekkert smá gaman að sjá þau. Ég kíkti með þeim í draumaferðalag til Tælands en Ívar komst ekki með því hann var enþá í prófum. Við fórum á eyju sem heitir Phuket á eitt fínasta hótelið þar. Við vorum í himnaríki á jörðu og gerðum margt margt skemmtilegt á þeirri eyju. Fórum á fílabak, eyjahopp þar sem við förum þar sem The Beach var tekin upp,á frábæra sýningu og vax frá kynskiptingi. Aðallega vorum við bara að njóta tímans okkar saman og ófár stundir á ströndinni, barnum og á svölunum...Takk fyrir mig..Elska ykkur!!

Þegar við vorum í Tælandi hringdi Ívar og tilkynnti okkur að mamma hans væri í flugvél á leiðinni til Malasíu, þannig þegar við komum heim var Rakel komin til okkar. Það var frábært að hafa heimilið svona fjölmennt og við skemmtum okkur vel saman. Mamma og pabbi fóru með Rakel í túr um KL einsog pro og við héldum rosa 17 júní partý niðri og sýndum vinum okkar hvernig íslendingar drekka brennivín, hákarl og harðfisk.
Sama dag og mamma og pabbi flugu aftur heim, fórum við ívar með mömmu hans til Tælands, en í þetta skipti Norður- Tælands. Byrjuðum á Chang Mai og eyddum nokkrum dögum þar að skoða okkur um og tókum síðan rútu til Chang Rai þar sem vinkona Rakel býr. Þar var ÆÐISLEGT!!! Ég og Ívar sváfum í rosa flottu gestihúsi hjá Rebekku en vorum að skíta á okkur hverja nótt sem að við gistum þar. Þegar við vökuðum á morgnana og litum út um gluggan og sáum endalaust af sveit og waterbuffalós var þess virði. Og ekki má gleyma ferðalaginu sem að Jay sonur Rebeccu tók okkur ívar í. Þau eiga ferðamannaþjónustu, veitinagarhús og hótel í þessum bæ þannig að við fengum einkatúr með guide og alles. Þar fórum við í rosalega afskekkt fjallaþorp á fílabak um bæin og fíllinn synti með okkur í hliðará Mekong river. Síðan var skellt sér til Búrma á markað og endað á því að skoða Gullna Þríhyrningin þar sem þú sérð Laos, Tæland og Burma skiptast með Mekong ánni. Eftir Chang Mai var skellt sér til Bankok þar sem við skoðuðum hitt og þetta og förum í frábært nudd, en eins mikið og ég elska tælandi...þoli ég ekki Bankok!!

Eftir að Rakel kvaddi okkur eftir frábæra ferð ákvöðum við Ívar að við þurfum smá frið og næði bara við tvö saman. Þannig hvert skelltum við okkur....Tælands hahaha. Við eyddum nokkrum dögum við strönd Tælands í bæ sem að heitir Krabi, þar sem við tókum taxi boat á ýmsar draumaeyjur en skelltum okkur síðan til PhiPhi island og gistum þar í nokkra daga. Það var æði...svo rolegt og fallegt...leigðum okkur taxi boat yfir daginn sem að fór með okkur að snorkla og þar sem að The beach var tekin upp og utum allt í kringum Phiphi...fáranlega rómó! En seinasta daginn skellti ég mér aftur í köfun en í þetta skiptið kafaði ég tvisvar yfir daginn og förum út með báti! Einsog áður var það æðislegt!!! Kláruðum ferðina okkar með Phuket..túristabrálæðinu..þar var verslað, farið á Muy Thai Boxing og einsog gerist á Phuket...Djammað..

Í ágúst kom Elvan mín og snjólaug í heimsókn. Við gátum ekki ferðast mikið með þeim þar sem skólinn var byrjaður aftur en þær skelltu sér til Balí og Tælands en ég skellti mér með þeim í Singapore þar sem við sáum fáranlega stóra og marga kakkalakka, flassara og stelpurnar fengu leðurblöku skít á auga og eyru. Við skoðuðum allt í Singapore, fórum á bar á 72 hæð, í flottasta dýragarð sem ég hef farið í og flottasta og stæsta skemmtistað sem ég hef farið á.Einnig komst minni hræðslu við cable cars.Síðan eyddum við einum degi í genting highlans og fórum í casinó. Það var ólýsanlegt að hafa Elvu mína hjá mér....vildi að hún væri alltaf hérna...við skemmtum okkur frábærlega saman..það mikið að öryggisverðirnir komu heim til mín..hehe. Ég grét þegar ég sótti hana á flugvöllinn og þegar ég skutlaði henni þanngað.

Ég skellti mér á tónleika með Avril Lavigne...þeir voru ekkert spes...án efa leiðinlegustu tónleikar sem ég hef farið á!

Þegar ég varð 23ja ára hélt ég 80´s party við sundlaugina, þar sem við klæddum okkur upp og hlustuðum bara á 80´s. Án efa eitt skemmtilegasta djamm sem ég hef upplifað í Malasíu fyrir utan afmælisdrykkinn sem að ég var látinn drekka!!!

Í oktober var mér boðið heim til Önnu vinkonu minnar að fagna fysta deginu eftir 30 daga föstu múslima, einskonar jól múslima. Borðaði geðveikt góðan mat og eyddi deginum með fjölskyldu hennar að spila og horfa á jólamynd. Seinna í mánuðnum fór í náttfatapartý til hennar sem var æðislegt!!!

Eftir skólalok í nóvember skelltum við okkur til Langkawi með önnu, azoo og fleira fólki. Þar var farið í búiðna keypt bjór og klaki og beint á ströndina...langkawi er tollfrjáls eyja þannig að bjórinn er mjjög ódýr..Ég og Ívar ákvöðum að vera lengur eftir að hinir fóru heim...eyddum nokkrum dögum á Langkawi og tókum síðan ferju yfir til Penang eyju...leigðum okkur bíl og keyrðum í kringum eyjuna..Rosalega vel heppnið ferð í alla staði...

Desembermánuði eyddum við heima hjá okkur...keyrðum útum allt í KL og úthverfi. Jólin voru æðisleg...en skrítin. Fórum fínt útað borða og síðan að djamma á aðfangadag...borðað fínan mat heima og kúrt á jóladag/afmælisdag Ívars...og ég eldaði mitt fyrsta hangikjöt og uppstúf annan í jólum. Á gamlárskvöld fórum ég og ívar rosalega fínt út að borða á spænskum veitinastað og síðan í klúbb þar sem Anna vinkona planaði partý. Það var samt rosalega skrýtið að kveikja ekki í einum flugelda...sérstaklega fyrir Ívar...og ekki má gleyma skaupinu..er búin að vera reyna horfa á það á netinu en virkar aldrei :S . Hangikjötið var klárað á nýársdag með mikilli sorg!

Við erum búin að kaupa yfir 150 dvd myndir og margar seríur á árinu...sem að við horfum á í risastóra 12 tommu sjónvarpinu okkar...

Ekkert vildi lifa heima hjá okkur...pabbi gaf okkur bardagafisk sem að fyrirfór sér og ívar keypti aloavera plöntu sem gerði hið sama.


Svo fuuullllt fuulllt meira sem að við erum búin að gera á árinu 2008. Árið er búið að vera hið viðburðaríka og skemmtilegt! Og ég vona bara að 2009 verði jafn frábært, erum allavegna að fara á tónleika með Rihanna og Jason Mraz og erum byrjuð að spá í hvert næst skal halda í frí

Jólin í Malasíu

28. desember 2008 klukkan 14:19
Eru búin að vera mjög kósí....

Förum fínt útað borða á aðfangadag og fengum dýrindis 3ja rétta máltið...namm ekkert smááá gott!! Eftir það ákvöðum við að skella okkur útá lífið sem var mjög spes...fórum inná einhvern klúbb þar sem við fengum gefins jólapoka með glowsticks, áramótasprengjum og lúðrum...þetta þótti okkur mjög skrýtið en semsagt hér er talið niður þannig klukkan slær á miðnætti þá fagna að jólin séu komin rétt einsog við fögnum áramótum á íslandi..

Á jóladag var legið heima í sófanum, borðað osta, sultur og kex...og svínasteik með sykruðum karftöflum til þess að fanga 25 ára afmæli Ívars...já hann er orðinn hálffimmtugur kallinn...

Annan í jólum héldum við jólaboð og elduðum hangikjöt og uppstúf...allt gekk rosalega vel meðað við frumraun í þeirra deild :)

Við óskum öllum gleðilegra jóla enn og aftur :)

Bráðum koma blessuð jólin

22. desember 2008 klukkan 02:59
Þessa dagana erum við búin að reyna koma okkur í jólaskap...skellum okkur í moll, ikea og komum svo heim hlustum á jólalög á léttbylgjunni og bökum...
Keyptum okkur þetta fína jólatré

En svo inná milli fattar maður að það er ekki snjór úti og maður eyðir heilu deginum í sundlauginni með bjór Cool

Jólaplanið hérna í Koi Tropika er að fara rosa fínt út að borða á aðfangadag, fundum fáranlega fancy veitingastað sem er non-halal okkur til mikillar ánægju...

Svo á Ívar 25 ára afmæli á jóladag...þá verður eitthvað kosí gert...best afmælisdagarnir eru rólegir og góðir......

Aðalmálið er annan í jólum...svo.....wait for it..... HANGIKJÖT!!!!!! já foreldarar ívars voru svo æðislegir að senda okkur 2ja kíló hangikjöt....án gríns ég get varla opnað ískápinn min því að það er of freistandi. Við ætlum semsagt íslendingarnir og Cyppie að koma saman hér og borða dýrindis máltið öll klædd upp og skiptast á gjöfum....
Matseðillinn hljómar svona....

Forréttur
Graflax (sem ég fékk í IKEA Laughing)

Aðalréttur
Hangikjöt og uppstúf

Dessert
Möndlugrautur með karmellusósu

Hljómar vel...ekki satt!!!!??

Annars óskum við ykkur gleðilegra jóla og farsælt komandi ár, þökkum öll símtölin og rafrænu samskiptin. En fyrir þau sem komu í heimsókn til okkar þökkum við félagsskapinn :)



Jólakveðja..
Sandra og Ívar

ha..sagðir þú Proton??

09. desember 2008 klukkan 03:11
Já..hvað hefur þú ekki heyrt um frábæra malasíska bílategund Proton...

Ég held að ég hafi aldrei bloggað neitt um bílamálin okkar hér, sem er mjög skrýtið þar sem að við eyðum fáranlega miklum tíma í að redda bílnum, sækja bílin, fara með bílinn í skoðun, hlaupa frá kakkalökkum sem búa í bílnum...

Án gríns..þá höfum við misst töluna á hversum mörgum bílum við höfum leigt allan þennan tíma sem við höfum verið hér...ef ég ætti að giska myndi ég segja um 12-15...Og með hverjum bíl lærum við e-ð nýtt...

  • Proton bílar fljóta...
  • Það kostar 100 kall að skipta um bremsuborða á Proton...

       ...en þær endast varla út mánuðinn

  • Proton Saga líkist Back to the future bílnum fáranlega mikið
  • Samt eiginlega hönnun á öllum Malasískum bílum er stolin...aðallega frá Toyota og Hyundai..
  • Allir mælar á Proton gefa þér false information...
  • Öll dekk leka á bílnum....
  • Og ekki má gleyma litlu kakkalakka famelíunni sem fylgir hverjum bíl :)

Þrátt fyrir þetta...þá erum við alltaf jafn þakklát þegar við fáum lyklana í hendurnar...vorum bíllaus í viku um daginn og ég hélt að við myndum missa vitið og deyja af heimsendingarmat...Við erum semsagt komin aftur á bíl og getum farið að gera e-ð skemmtilegt...aðeins að stússast síðan erum við að spá helgarferð til Port Dickson og Melaka svo sér maður bara til...æðislegt líf eftir kaup GPS tækis.... love it


En annars komst ég inní Griffith í Ástralíu með skilyrði...að taka ielts, ég veit samt ekki hvernig biðin í það er hér ætlaði að komast að því í dag..en einsog alltaf í malasíu var Public Holiday hehe..(FYI Ef að það er Public Holiday á Laugardegi þá er frídagurinn færður á næsta virka dag...skiluru? haha)


Við höfum samt ekkert ákveðið..satt að segja er ég ekkert tilbúin að fara héðan..nýbyrjuð að kynnast malasíu almennilega..eignast góða vini...og byrjuð að fíla Malasíu...Og þótt að kreppan sé í gangi getum við notið þess að borða góðan mat, átt heima í huge íbúð með sundlaug og rækt, verið á bíl og verslað...eitthvað sem að við gætum ekki í Ástralíu...


Þannig að við erum að spá í að vera hér í eina önn í viðbót, taka öllu rólega, skipuleggja betur flutninga....en einsog ég segi..allt en óákveðið...mun láta ykkur vita um leið og eitthvað breytist...