Langkawiiiii
Fríið var alveg æði...fórum 9 saman til Langkawi í næturrútu sem að engin svaf í sökum hræðilegum hrotara í rútunni!!! Díses hvað fær svona fólk til þess að fara í næturrútu!!! Svaf ekkert í ferjunni sökum sjóveikis...En það stoppaði okkur ekki að fara beint í búðina og kaupa fáranlega ódýran bjór og klaka...og svo á ströndina... ahhh þetta var æææðððiii. En samt munum við lítið frá deginum sökum ofþreytu og drykkju haha...en svoleiðis á langkawi að vera...Fólkið fór heim eftir nokkra daga en ég og ívar ákvöðum að dvelja lengur og halda áfram lúxus lífinu...sem var romó og æðislegt..
Eftir Langkawi ákvöðum við að taka ferju til Penang og taka rútuna heim þaðan...náðum að keyra hringinn í kringum eyjuna og sjá allskonar áður en við rétt náðum rútunni..sem var full af reiðum og sívælandi túristum sem voru að koma frá Bankok útaf verkfallinu á flugvellinum þar.
En mestmegnið af ferðinni fór í fáranleg rólegheit á ströndinni og rosalega góðan mat...fundum besta veitingarstaðinn í Malasíu því miður er hann staddur á eyju langt frá heima....þetta var ekkert smá vel heppnuð og skemmtileg ferð með skemmtilegu fólki

Myndir eru væntalegar á feisbúkk bráðlega....
Helst í fréttum...
-
Við erum bæði búin með skólan þannig að þessa dagana slökum við mikið á, horfum á vidjó og drekkum bjór...
-
Við erum að fara til Langkawi á morgun með nokkrum vinum það verður rosa stuð....Langkawi er tollfrjáls eyja :)
-
Eftir Langkawi ætla ég og ívar líkalegast aðeins að ferðast um...fara til Penang og e-ð svoleiðis....
-
Svo erum við að spá og spekulera hvort að við eigum að skella okkur til Jakarta bráðlega....
-
Það er byrjað að skreyta hér á fullu...maður fær soldið heimþrá við að kíkja í mollinn hér...
-
Ég hringdi áðan útaf skólanum í Ástralíu...hún sagðist ætla reyna að gefa mér svar á mánudaginn....
Verslunarferđ
Handsápu
Shampoo&Hárnæringu
Súkkulaðiköku
Mjólk
Fínan Ost
Brauð
Smjör
1/2 kiló af kartöflum
Fór svo í Non Halal og keypti;
Svaka fínar svínasteikur
2 tegundir af Skinku
Endaði á KFC og keypti tvær stórar máltiðir...
Þetta allt kostaði mig 3700 íslenskar krónur....þegar við komum kostaði þetta allt um 2000 íslenskar krónur..
Ég kalla þetta samt ekkert slæmt...
Lćrićrilćr
Ég er allavegna búin með 3 fyrirlestra, á einn eftir á morgun...svo 5 verkefni...og 4 próf á næstunni...
Annars erum við að plana að fara til Langkawi eftir önnina...erum að reyna fjölmenna ferðina svo ætlum við anna að gera einhverja skemmtilega dagskrá fyrir ferðina. Það er minn metnaður til þess að klára allt þetta...hugsa bara um Langkawwwiiiiiiiiiiii!!!
Setti nokkrar myndir frá oktober inná feisbúkkið...reyni að setja þær hingað inn við betra tækifæri...
Allavegana....vona að þið hafið það gott....
Til hamingju međ afmćliđ Ćvar Logi minn!!!

Hann á afmæli í dag...
Hann á afmæli hann Ævar....
Hann á afmæli í dag!!!!
Í dag er eitt ár síðan að einn af mínum uppáhaldsfrændum hann Ævar Logi fæddist...hann var nú soldið mikið að flýta sér í heiminn drengurinn, fæddist 7 mín eftir að hann kom á spítalan..reyndar eftir langa bílferð frá reyðarfirði til neskaupsstað um miðjan vetur og nótt...
Ég sá kúrubangsan samt ekki fyrr en mánuði seinna að sökum að öll familían var flutt austur! Og það eina sem hann vildi gera var að kúra og súpa....
Elsku Ævar Logi minn til hamingju með eins árs afmælið..ég elska og sakna þín endalaust mikið koss koss og knús...
Tími fyrir blogg
og ég vona að þið hafið átt frábæra helgi einsog ég..á föstudaginn fór ég í frábært náttfata/stelpu/sund/kokteila/maska/naglalakka/cupcake/matar partý heima hjá Önnu og það var alveg frábært!! Svo á laugardaginn sótti ég um í skólann í ástralíu...fæ að vonandi að vita e-ð eftir 3 vikur....fingers crossed og hugsa secret!!! Síðan um kvöldið skelltum við íslendingarnir okkur í mat og djamm í KL. Byrjuðum á þessari fínu götu sem er með endalaust af kósí veitingarhúsum og börnum...okkur leið rosalega vel með að sitja á bar og getað talað saman..yfirleitt situr maður bara á klúbb og öskar "HAAAA" allt kvöldið hér.... we felt like home! Það kvöld týndist annar sími...get ekki talið lengur hversu margir síma hafa horfið síðan að við fluttum hinngað..En ég fékk samt sama nr mitt aftur með inneiginni og alles...
Annars er voða lítið eftir að skólanum hjá okkur, hann klárast 15 nów..þannig að við erum bara á fullu í verkefnaskil og fyrirlestrum.
Jæja best að halda áfram að læra...reyni að skella inn nýjum myndum við betra tækifæri..
Guđ blessi ţjóđina...
En ég veit nú ekki lengur upp né niður í þessu kreppumáli...var vakandi í alla nótt að hlusta á ávörpinn og fjölskyldu, til þess að fá einhverju hugmynd hvaða ráða við ættum að taka. Ég er engu nær. Og eiginlega nenni ekki meir....
Fríið mjög fínt....fórum ekki neitt sökum heimlærdóms og gengis. Auk þess að hafa verið miðvetrafrí voru "jól" múslima Hari Raya. Á fyrsta degi Hari Raya fór ég og Azoo heim til Önnu að borða, spila leiki og horfa á jólamyndir..já jólamyndir á hátíðardegi múslima hahaha. En aðalmálið er nátturulega máltíðin vegna þess að þau voru búin að vera fasta í 30 daga. Ég hef aldrei fengið svona góðan mat í Malasíu..namm fæ alveg vatn í munnin að hugsa um það. Þetta var mjög gaman og skrýtið að fá að upplifa þetta með þeim. Fékk mig líka til þess að hugsa um jólin á íslandi sem ég verð líklega ekki viðstödd...leiðinlegt að vera ekki með fjölskyldu sinni og vinum að borða hamborgarahrygg!! En við gerum e-ð annað skemmtilegt í staðin.
Vitum ekki hvernig málin standa með Ástralíu, hvort að það sé hagstætt fyrir okkur að fara strax eftir áramót. Getur verið að við frestum þessu um eina önn. Annars er ráðstefna bráðlega fyrir fólk sem hefur áhuga að læra í ástralíu..við kíkjum þanngað og sjáum til hvernig fer.
Ég átti afmćli í gćr...ég átti afmćli í gćr!
Byrjaði með 80´s afmælinu mínu á laugardaginn sem var ekkert smááá skemmtilegt....það var fámennt en góðmennt...og við skemmtum okkur frábæralega saman...dönsuðum við 80´s tónlist, klæddum okkur upp, borðuðum gott satay, sungin afmælissönginn. ég var látin drekka glas af blöndu af öllu sem var í boði í afmælinu síðan skelltum við okkur á nokkra klúbba í outfittinu...slógum alveg í gegn...Þið getuð skoðað myndirnar hér

Svo á sjálfan afmælisdaginn gerðum við ívar stofununa kósí fyrir pítsu, kökur og videogláp...ekkert smá næs...förum ekki út allan daginn....lagum bara uppí sofa að hafa það kosí án þess að hafa áhyggjur af heimalærdómi....æði!!!! Samt frekar spes að eiga ekki von á stelpunum með eina góða betty til mín...
Það er engin skóli þessa vikuna vegna miðvetrafrí, við erum að vona að komast eitthvert á fimmtudaginn...það er bara svo mikil heimavinna hjá ívari...þannig að hann ætlar að hanga heima alla daga þanngað til og læra. Það er ekkert svo mikið hjá mér vegna þess að það var allt fyrir fríið...sem er miklu sniðugra!! skil ekki allir kennarar hafa það ekki þannig!!!!
Annars vil ég þakka fyrir allir afmæliskveðjurnar sem að ég fékk....alltaf gaman að heyra frá ykkur :*
Annars er malasíulífið komið aftur á sinn eðlilega veg....skólinn á fullu..miðvetrapróf í næstu viku. Það var nú aðeins skemmtilegra að hanga með Elvu......
Fór áðan til Kristínar að búa til boðskort fyrir afmælið mitt...það verður 80´s þema. Það er ekkert smá töff hehe...

Hvað finnst ykkur?
Elva eitthvađ ađ spjallandi
Sælar stelpur.. eg er nátla ekki mesti bloggarinn í veröldinni. En hér ætla ég aðeins að tjá mig. Þad er búið ad vera ógeðslega gaman. Snjólaug er reyndar búin ad halda aðeins aftur af mér en ég er líka búin ad ná að plata hana í ýmislegt
Eins og þið allar vita þá er ekkert mál að láta Söndru taka sér bjór í hönd. ´´Eg á bara eina nótt eftir og þá legg ég af stað til London að hanga og chilla og djamma með Lovísunni!! Ég sakna ykkar allra frekar mikið.. er ekkert búin að vera dugleg ad senda sms né neitt enda ömurlegt netsamband allstaðar... Hlakka til að koma heim.. en vill ekki fara héðan. Ég er alveg að fíla asíu í botn og langar ekkert til að yfirgefa hana Söndru mína
Mætti kannski bæta því við stelpur að aldrei og þá meina ég aldrei hleypa karlinum ykkar einu til tælands og ef þið farið með ekki sleppa augunum af honum í korter!! Allir gaurnir voru með tælenskum hórum.. þá meina ég ungir og fallegir og gamlir ógeðslegir og krumpaðir!! Þetta var virkilega ógeðslegt.. missti næstum allt það álit eftir af karlmönnum sem að ég átti eftir.. en allir ríða þeir hórum ef að þeir hafa tækifæri til.. Allir hvítu voru með hórum svo það hækkaði kannski aðeins álitið á hinum.
En já við erum að fara á djammið á fínasta veitingastaðnum í KL... KL Tower.. þurftum að panta borð langt fram í tímann og alles. Hlökkum mikið til!!!
En já ætla ekki að segja mikið meira verð bara að tala um allt sem að við gerðum þegar ég kem heim.. leiðinlegt að vera eitthvað að telja þetta upp!!
Kv. Elva
